1 júl. 2011
Í gær lauk 8-liða úrslitunum á EM kvenna. Þar lauk öskubuskusögu Svartfjallalands en þær töpuðu sínum fyrsta leik á mótinu gegn Tyrklandi. Það þýðir að Tyrkland fer áfram í undanúrslit en Svartfjallaland leikur um sæti fimm til átta og mætir þar Litháen í fyrri leik sínum og liðið sem sigrar þar leikur um 5. sætið gegn Króatíu. Tapliðið mætir Lettlandi í leik um 7. sætið. Fjögurra liða úrslitin verða því þannig skipuð: Tékkland · Rússland Frakkland · Tyrkland Nánar á [v+]http://www.eurobasketwomen2011.com/en/default.asp [v-]eurobasketwomen2011.com[slod-].