28 jún. 2011
Í dag kl. 14 verður dregið í riðla í Lengjubikar karla og kvenna fyrir komandi tímabil. Dregið verður í Laugardalnum í fundarsal á 3. hæð og eru allir velkomnir. Á körfuknattleiksþinginu sem haldið var í maí var reglugerð um fyrirtækjabikar karla og kvenna breytt, þannig að núna verður dregið í riðla og liðum styrkleikaskipt eftir árangri þeirra í fyrra í deildarkeppninni. Hjá körlum leika fjögur lið saman í fjórum riðlum. Sigurvegarar hvers riðils leika til úrslita og fara í undanúrslit. Hjá konum verða tveir riðlar sem skipa fimm lið hvor og mætast sigurvegarar hvors riðils í úrslitum. Leikir í Lengjubikarnum verða alltaf leiknir á sunnudögum fram að úrslitum en leikir í íslandsmótinu munu vera á fimmtudögum/föstudögum í mótaplaninu. Fyrsti leikdagur er 23. október og úrslitin verða helgina 2.-3. desember.