27 jún. 2011Á hverju stórmóti má búast við óvæntum úrslitum og gengi liða og er EM kvenna í Póllandi fyllilega að standa undir nafni í þeirri deild. Spænska liðið, sem var fyrirfram talið líklegt til að keppa um verðlaun á mótinu, er fallið úr leik og kemst ekki í undanúrslit sem hefur að auki þau áhrif að það mun missa af möguleikanum að komast á Ólympíuleikana í London. Þetta varð ljóst eftir að liðið tapaði í gær gegn Króatíu. Lið Spánar hefur unnið til verðlauna á EM samfleytt síðan 2001 og hlaut brons á HM síðast. Á sama tíma er lið Svartfjallalands, sem er að taka þátt í keppninni í fyrsta, sinn búið að vinna alla sex leiki sína og eru á hörku siglingu í átt að úrslitunum. Lið þeirra vann sterkt lið Letta í gær með fjórum stigum og þær eru nú á toppnum í öðrum af tveim milliriðlum á undan Lettlandi, Frakklandi og Króatíu. Í hinum riðlinum eru það Litháen sem eru efstar og hafa unnið alla sína leiki einnig itl þessa en svo koma Tékkar, Rússar og Hvít-Rússar. Hægt er að sjá svipmyndir úr leikjunum á [v+]http://www.fibatv.com/page/Video?tabb=highlights [v-]FIBATV.com[slod-].