23 jún. 2011Körfuboltabúðir í Dalhúsum verða haldnar 27. júní – 3. júlí fyrir stelpur og stráka, fædd 1992-1999. Um er að ræða eins viku búðir með mat og gistingu ef þess er óskað. Búðirnar verða í íþróttamiðstöðinni við Dalhús og standa frá kl. 8:00 til kl. 17:00. Dagskráin verður í þessa átt: 08:00- 09:00 Frjáls tími 09:00- 09:30 Upphitun 09:30- 11:00 Stöðvaþjálfun 11:00– 12:00 Spil 12:00-13:00 Hádegismatur 13:00-13:30 Fyrirlestur 13:30-15:00 Stöðvaþjálfun 15:00-17:00 Spil og leikir Þjálfara á búðunum verða Hjalti Þór Vilhjálmsson yfirþjálfari yngriflokka Fjölnis, Örvar Kristjánsson þjálfari meistaraflokks Fjölnis, Finnur Freyr Stefánsson yfirþjálfari yngriflokka hjá KR, Hörður Axel Vilhjálmsson landsliðsmaður og leikmaður Keflavíkur, Ægir Steinarsson landsliðsmaður og leikmaður Fjölnis/Newberry, Tómas Heiðar Tómasson landsliðsmaður og leikmaður Fjölnis/Newberry, Arnþór Guðmundsson U20 landsliðsmaður og leikmaður Fjölnis, Haukur Helgi Pálsson landsliðsmaður og leikmaður Maryland, Halldór Steingrímsson yngriflokkaþjálfari Fjölnis, Jón Sverrisson leikmaður Fjölnis og þjálfari, Árni Ragnarsson leikmaður Alabama Huntersville og einnig munu fleiri gestir kíkja við. Þeir sem halda fyrirlestur verða Ólafur Sæmundsson næringafræðingur, Viðar Halldórsson félagsfræðingur, Haukur Helgi Pálsson um lífið í USA og leið sína þangað, Hörður Axel Vilhjálmsson um hvað þarf að gera til að ná langt, Ægir Þór Steinarsson um sjálfan sig, hvernig hann undirbýr sig undir æfingar og leiki, Rúnar Pálmarsson sjúkraþjálfari um hvernig hægt sé að minnka líkur á meiðslum og Hjalti Þór Vilhjálmsson um markmið og markmiðssetningu. Iðkendur fá flotta viðsnúnings boli frá Errea, keppt verður í ýmsum keppnum bæði einstaklings- og liða keppnum. Þetta er frábært tækifæri fyrir körfuboltaiðkendur landsins til að auka kunnáttu sína í þessum magnaða leik undir handleiðslu flottra þjálfara og frábærra leikmanna og fá einnig fyrirlestra um þætti sem eru mikilvægir til að ná enn lengra í körfuboltanum. Skráning fer fram á [v+]http://fjolnir.is/home/sumanamskeid.dot [v-]www.fjolnir.is[slod-]. Verð búðanna er 25.000 kr. með öllu. Hægt er að vera einn dag í einu í búðunum og kostar þá dagurinn 4000 kr. og þeir sem verða 5 daga eða fleiri fá Viðsnúningsvesti. Þeir sem mæta dag og dag borga á staðnum.