21 jún. 2011Þrír leikmenn 15 ára liða Íslands voru valdir í úrvalslið Copenhagen Invitational á lokadegi mótsins á sunnudag. Þær Sandra Lind Þrastardóttir og Sara Rún Hinriksdóttir voru í 5 manna úrvalsliði mótsins ásamt þeim Saskia Berends og Esther Fokke frá Hollandi og Annemie Scheel frá Hjemly.
Gunnar Ingi Harðarson var valinn í úrvalsliðið hjá strákunum, en auk hans voru þeir Robert Ian Boezeman frá Hollandi, Joshua McGilvray frá Skotlandi, Alexander van Spereckelsen frá Værlöse og Joe ”Junior” Mvuezolo frá Englandi í úrvalsliðinu.