21 jún. 2011Nú stendur yfir EM kvenna í Póllandi en keppni hófst 18. júní og lýkur 3. júlí. Keppni í riðlum lauk í gær og við tekur milliriðill þar sem leiknir verða 3 leikir og þá taka við leikir um sæti og úrslit. Eitt lið í keppninni eru Íslendingum kunnugt um en það er lið Svartfjallalands, en Ísland lék gegn þeirra liði í B-keppninni fyrir einu og hálfu ári í Smáranum hér heima. Nú eru að minnsta kosti 8 leikmenn sem heimsóttu Ísland heim að leika með liðinu í lokakeppninni. Það var aðdragandi þess að liðið náði inn í þessa lokakeppni í Póllandi en Svartfjallaland sigraði sinn riðil í B-keppninni og lagði Portúgal í tveim leikjum til að fara í áfram í lokakeppnina. Lið Svartfjallalands hefur staðið sig mjög vel til þessa í keppninni en þær eru búnar að vinna alla þrjá leiki sína í C-riðli, og lögðu meðal annnars heimastúlkur og sterkt lið Spánar, þannig að þær eru til alls líklegar á mótinu. Næsti leikur þeirra verður gegn Króatíu á morgun og svo munu þær leika gegn sterku liði Frakka og loks Lettlandi. Fyrir áhugasama þá er hægt er að horfa á alla leikina frítt á [v+]http://www.fibatv.com/page/Home/0,,12805,00.html?WT.mc_id=fibaflsban [v-]FIBATV.com[slod-]. Heimasíða mótsins með leikjadagskrá, myndum af liðum og úr leikjum og stöðu má finna á [v+]http://www.eurobasketwomen2011.com/en/default.asp [v-]www.eurobasketwomen2011.com[slod-].