20 jún. 2011Fyrstu helgina í júlí fer fram Humarhátíðin á Höfn og í tengslum við hana verður, eftir nokkurt hlé, efnt til Streetball-móts á nýjum útivelli við Heppuskóla á Humarhátíðinni. Keppni fer fram á laugardeiginum 2. júlí. Spilað verður 3-á-3 en hvert lið má hafa einn skiptimann. Sóknin dæmir. Þegar lið hefur náð að skora 11 stig (og er að vinna með 2 stigum) hefur það unnið leikinn eða þá það lið sem er yfir eftir 12 mínútna leik (klukkan er ekkert stoppuð). Keppt verður í tveimur flokkum, 12-16 ára og 17 ára og eldri. Mótsgjald er 1.000 kr. á lið og greiðist á mótsstað. Áættlað er að keppni yngri þátttakenda hefjist kl. 14.00 og verði lokið um kl. 15.00. Eldri hefja leik í framhaldinu og miðað er við að mótið verði að klárast um kl 17.00. Verðlaun verða svo veitt fyrir sigurvegara í hvorum flokki fyrir sig. Skráning fer fram á netfanginu [p+]sindrikarfa@gmail.com[p-] sindrikarfa@gmail.com[slod-] en senda skal inn nafn á liði, nöfn þeirra sem eru í liðinu ásamt aldri leikmanna. Dagskrá hátíðarinnar er væntanleg á [v+]http://www.humarhatið.is [v-]www.humarhatið.is[slod-].