17 jún. 2011U 15 lið stelpna vann góðan sigur í fyrsta leik á Copenhagen Invitational. Sigur vannst á liði Englands, 61-45. Stelpurnar byrjuðu mjög, spiluðu stífa maður á mann vörn sem virtist koma Englendingum á óvart. 2-2-1 pressa eftir vítaskot skilaði líka nokkrum stigum. Eftir 6 mínútur var staðan orðin 17-2. Þá fóru þær ensku að ná áttum. Þær náðu betur og betur að stilla upp sínum sóknum og fóru að fiska villur á varnarmenn okkar, auk þess sem þær náðu þó nokkrum sóknarfráköstum. Íslensku stelpurnar náðu þó reglulega að trufla þær ensku í mistök, þannig að í hálfleik vorum við með örugga forystu, 37-17. Í þriðja leikhluta leit út fyrir að við ætluðum endanlega að stinga þær þegar við komumst í 47-18 þegar 5 mínútur voru búnar. Þá settu Englendingar snöggt lið inná. Nokkrar stelpur sem voru vel á sig komnar byrjuðu að spila mjög fast á okkar leikmenn. Stelpurnar réðu oft illa við slíka pressu og misstu boltann nokkrum sinnum frá sér. Þegar 6 minútur voru liðnar af fjórða leikhluta var staðan orðin 53-43 og stemmingin öll Englands megin. Íslenska liðið skipti þá í svæðisvörn, sem hægði aðeins á sóknarleik Englendinga. Á sama tíma fóru stelpurnar að taka betur á móti hörku andstæðinganna. Dómararnir virtust kunna við það og dæmdu eftir það frekar villur á þær ensku. Sigurinn var því aldrei hættu og lokatölur urðu 61-45. Til gamans má geta að eftir leikinn sögðu stelpurnar að þær hefðu verið dálítið stressaðar vegna þess að helmingur leikmanna í liði England var dökkur að lit. Þær hafa þó greinileg náð að yfirvinna það, miðað við góða byrjun í leiknum. Allir 12 leikmenn liðsins komu við sögu. Stigin skiptust svona; Sara 22 , Elsa 9, Guðlaug 9, Sandra 6, Eva 4, Ingibjörg 3, Andrea 3, Júlía 2, Margrét 2 og Bríet 1. Helena og Nína skoruðu ekki. Næsti leikur spilast síðar í dag.