15 jún. 2011Búið er að framlengja skráningarfrestinn í Sumardeildina til föstudagsins næstkomandi. Hægt er að skrá sig á [p+]sumardeildin@kki.is[p-]sumardeildin@kki.is[slod-] en nánari upplýsingar er að finna [v+]http://kki.is/frettir.asp?adgerd=ein&id=6900 [v-]hérna[slod-]. Í stuttu máli er keppnin þannig að mest 7 geta verið í liði. Leikið er 3-á-3 í sumar fram í ágúst þar sem úrslitadagur verður haldin hátíðlegur. Liðin sjá sjálf um að bóka leiki gegn hvort öðru eftir því hvenær það hentar báðum aðilum að spila á útivöllum landsins. Deildin var sett á laggirnar fyrst í fyrra og tókst frábærlega, en 14 lið mynduðu tvo riðla og léku allir tvisvar við hvert lið, en oftast léku liðin tvo leiki í röð þegar þau hittust. Efstu liðin fóru svo í 8-liða úrslit sem haldin voru á Klambratúni í blíðskaparveðri.