10 jún. 2011Í hádeginu var nýtt þjálfarateymi A-landsliðs karla kynnt fyrir blaðamönnum en eins og áður hefur komið fram er það Svíinn Peter Öqvist sem nýr aðalþjálfari liðsins. Peter til aðstoðar eru Helgi Jónas Guðfinsson, þjálfari Grindavíkur, og Pétur Már Sigurðarson, þjálfari KFÍ. Hann er þjálfari Svíþjóðarmeistara Sundsvall Dragons sem landsliðsmennirnir Jakob Örn Sigurðarson og Hlynur Bæringsson spila með. Farið var yfir verkefni sumarsins en næst á dagskrá hjá liðinu er Norðurlandamótið í Svíþjóð en leikið verður á heimavelli Peters Sundsvall 23.-27. júlí. Einnig fer liðið í æfingaferð til Kína í haust og mætir heimamönnum í æfingaleikjum 9. og 11. september. Kína er að undirbúa sig fyrir Asíuleikana og verða leikirnir við Ísland þeir síðustu áður en keppni hefst. Er þetta í annað sinn á sex árum sem íslenska landsliðinu er boðið til Kína. Þetta er mikill heiður fyrir íslenskan körfubolta en körfubolti er vinsælasta íþróttagrein þessarar fjölmennustu þjóðar veraldar. Tvær breytingar eru á hópnum en þeir Fannar Helgason, leikmaður Stjörnunnar, og Guðmundur Jónsson, leikmaður Njarðvíkur, þurftu að draga sig úr hópnum vegna anna í vinnu. Hópurinn kemur saman til æfinga um helgina og svo aftur í byrjun júlí og æfir þá samfellt fram að brottför til Svíþjóðar. Hópurinn er skipaður eftirtöldum leikmönnum: Jakob Sigurðarson, Sundsvall Svíþjóð Hlynur Bæringsson, Sundsvall Svíþjóð Jón Arnór Stefánsson, Granada Spánn Logi Gunnarsson, Solna Svíþjóð Helgi Magnússon, Uppsala Svíþjóð Pavel Ermolinskij, KR Brynjar Þór Björnsson, KR Hreggvidur Magnússon, KR Finnur Atli Magnússon, KR Jón Orri Kristjánsson, KR Fannar Ólafsson, KR Sigurður Gunnar Þorsteinsson, Keflavík Hörður Vilhjálmsson, Keflavík Jón Ólafur Jónsson, Snæfell Pálmi Freyr Sigurgeirsson, Snæfell Emil Jóhannsson, Snæfell Sveinbjörn Claessen, ÍR Páll Axel Vilbergsson, Grindavík Ólafur Ólafsson, Grindavík Jóhann Árni Ólafsson, Njarðvík Ægir Þór Steinarsson, Newburry Bandaríkin Tómas Heiðar Tómasson, Newburry Bandarikin Ragnar Nathanaelsson, Hamar Haukur Helgi Pálsson, Maryland Bandaríkin