10 jún. 2011A-landslið karla kemur saman á ný um helgina en framundan er Norðurlandamót í Svíþjóð ásamt öðru spennandi verkefni í haust sem kynnt verður í dag. Peter Öqvist nýráðinn landsliðsþjálfari kom til landsins í gær og verður á fundinum á í dag þar sem fjölmiðlum gefst tækifæri á að ræða við hann varðandi landsliðið. Blaðamannafundurinn er í dag, föstudaginn 10. júní, og fer fram í húsakynnum ÍSÍ á 3. hæð og hefst klukkan 13:00. Æfingar um helgina hjá landsliðinu: Föstudagur 10. júní – Ásgarður · Garðabæ 16:00 – 16:45 Fundur með þjálfarateyminu 17:00 – 19:00 Æfing Laugardagur 11. júní – DHL-höllin 10:00 – 12:00 Æfing 15:00 – 17:00 Æfing Sunnudagur 12. júní - Grindavík 10:00 - 12:00 Æfing 15:00 – 17:00 Æfing