4 jún. 2011Finnar voru loka andstæðingar Íslands í riðlakeppni NM þetta árið. Stelpurnar í U16 öttu kappi við Finna þar sem finnska stálið var okkar stelpum sterkari og höfðu sigur 70-84. Finnarnir byrjuðu mjög sterkt og komust í 0-6. Stelpurnar unnu sig inn í leikinn og komust yfir 21-20 en það var síðasta sinn sem þær voru yfir. Finnarnir breyttu stöðunni í 22-30 og svo keyrðu þær upp muninn. Lokatölur 70-84. Stigahæst hjá Íslandi var Sara Rún Hinriksdóttir með 12 stig. Umfjöllun um leikinn á [v+] http://www.karfan.is/frettir/2011/06/04/finnar_feti_framar:_16_ara_stelpurnar_geta_borid_hofud_hatt [v-]Karfan.is[slod-] Myndasafn úr leiknum á [v+] http://www.karfan.is/myndir/myndir/id/801 [v-]Karfan.is[slod-] Leikurinn í tölum: Flest stig: Sara Rún Hinriksdóttir - 12 Flest fráköst: Sandra Lind Þrastardóttir og Andrea Björg Ólafsdóttir - 6 Flestar stoðsendingar: Þrjár með tvær - 2 Flestir stolnir boltar: Sara Rún Hinriksdóttir - 6 Flest varin skot: Sara Rún Hinriksdóttir - 10