4 jún. 2011Þrír leikir fara fram hjá íslensku liðunum á Norðurlandamótinu í Svíþjóð í dag. U18 ára landslið karla ríður á vaðið kl. 09:00 að íslenskum tíma er þeir leika gegn Finnum. Þá er gaman að greina frá því að í gærkvöldi varð ljóst að Ísland og Svíþjóð myndu leika til úrslita um Norðurlandameistaratitilinn í U18 ára flokki karla þar sem Norðmenn lögðu Finna í gærkvöldi með 7 stiga mun. Leikir Ísland í dag: 09:00 Ísland-Finnland U18 karla 11:00 Ísland-Danmörk U16 karla 17:00 Ísland-Finnland U16 kvenna Staðan hjá U18 karla: Svíþjóð 4 sigrar – ekkert tap Ísland 2 sigrar – 1 tap Danmörk 1 sigur – 2 töp Noregur 1 sigur – 2 töp Finnland 0 sigur – 3 töp Ísland hefur betur innbyrðis gegn bæði Norðmönnum og Dönum og þó Ísland myndi tapa leiknum gegn Finnum á eftir þá tækist hvorki Norðmönnum né Dönum að velta þeim út úr úrslitaleiknum. Staðan hjá U16 karla: Svíþjóð 3 sigrar – ekkert tap Ísland 2 sigrar – 1 tap Finnland 2 sigrar – 1 tap Danmörk 1 sigur – 2 töp Noregur engin sigur – 4 tapleikir 16 ára strákarnir þurfa sigur gegn Dönum í dag. Finnar mæta Svíum og að honum loknum skýrast línur endanlega þar sem þessi þrjú lið eru í baráttu innbyrðis. Ísland vann Finnland, Svíþjóð vann Ísland og svo mætast Svíar og Finnar í dag. Báðir 16 ára leikirnir eru á sama tíma eð akl. 11:00 að íslenskum tíma. Staðan hjá U16 kvenna: Svíþjóð 3 sigrar – ekkert tap Finnland 2 sigrar – 1 tap Noregur 1 sigur – 2 töp Danmörk 1 sigur – 1 tap Ísland enginn sigur – 3 töp Íslensku stelpurnar eiga Finna í dag. Sigur fleytir þeim ekki upp töfluna þar sem að þær töpuðu fyrir Danmörku og Noregi sem eru í sætunum fyrir ofan.