2 jún. 2011Strákarnir í U18 ára landsliðinu töpuðu 74-77 gegn Svíum í spennandi leik þar sem þriggja stiga karfa frá Val Orra Valssyni hefði tryggt íslenska liðinu í framlengingu en skotið geigaði og Svíar fögnuðu sigri. Ísland átti fínar rispur í leiknum og fékk nokkur tækifæri til þess að stinga af en Svíar eltu eins og skugginn. Fangmark liðsins, þéttofin svæðisvörn, náði ekki upp sömu stemmningu og gegn Dönum í gær en strákarnir mæta svo klárir í slaginn aftur á morgun kl. 09:00 þegar Norðmenn verða skoraðir á hólm. Þeir Martin Hermannsson og Valur Orri Valsson voru stigahæstir í íslenska liðinu í dag, báðir með 19 stig. Umfjöllun um leikinn á [v+] http://karfan.is/frettir/2011/06/02/thriggja_stiga_tap_18_ara_lidsins_i_spennuslag_gegn_svium [v-]Karfan.is[slod-] Myndasafn úr leiknum á [v+] http://karfan.is/myndir/myndir/id/792 [v-]Karfan.is[slod-] Myndbandsviðtal við Einar Árna Jóhannsson á [v+]http://karfan.is/karfantv/index/video/412[v-]Karfan.is[slod-] Hægt er að sjá svipmyndir úr leiknum á Youtube-rás [v+]http://www.youtube.com/watch?v=3v-_uGvnn5U [v-]KKÍ[slod-] Leikurinn í tölum: Flest stig: Martin Hermannsson og Valur Orri Valsson - 19 Flest fráköst: Stefán Karel Torfason - 10 Flestar stoðsendingar: Valur Orri Valsson - 5 Flestir stolnir boltar: Martin Hermannsson - 6 Flest varin skot: Ekkert varið skot - 0