31 maí 2011ÍR heldur spennandi körfuboltanámskeið fyrir krakka á aldrinum 10-15 ára dagana 7.-10. júní næstkomandi þar sem Haukur Helgi Pálsson, leikmaður Maryland háskólans, verður gestaþjálfari á námskeiðinu. Þátttökugjald á hvern einstakling er 4500 kr. þar sem hressing er innifalin í verðinu en það er Gunnar Sverrisson þjálfari ÍR í Iceland Express deild karla sem hefur yfirumsjón með námskeiðinu. Allar nánari upplýsingar má finna [v+]http://www.karfan.is/skrar/file/Prufa/NamskeidIR2011.pdf [v-]hérna[slod-].