23 maí 2011Dagana 1.-5. júní, eða eftir 9 daga, hefst NM í Solna í Svíþjóð. Leikið er að venju á heimavelli Solna Vikings líkt og gert hefur verið um nokkura ára skeið. Fjögur landslið halda utan á miðvikudaginn eftir viku, U16 liða drengja og stúlkna og U18 lið karla og kvenna. Þessa dagana eru liðin að æfa og í lokaundirbúningi fyrir brottför en í vikunni og um næstu helgi verða þau öll við æfingar. U18 ára liðin eiga fyrsta leik sinn á miðvikudagskvöldinu og leika síðan aftur daginn eftir. U16 ára liðin leika sína fyrstu tvo leiki hvort á fimmtudeginum þannig að þann daginn verða sex leikir hjá íslensku liðunum á mótinu. Liðin leika svo áfram á föstudegi og laugardegi og sunnudagurinn er undirlagður fyrir úrslitaleiki, en leikið eru um 3. sætið og til úrslita. KKÍ verður í Solna og mun flytja fréttir og myndir frá öllum leikjum okkar liða á mótinu á kki.is.