20 maí 2011Á morgun hefst námskeið Styrktarþjálfun.is og KKÍ með Lee Taft í Grindavík. Námskeiðið fer fram í íþróttahúsinu Röstinni og er dagskráin eftirfarandi: Laugardagur 21. maí 09:00-12:00 og 13:00-16:00 Sunnudagur 22. maí 08:30-12:00 og 13:00-15:30 Innifalið í námskeiðsgjaldinu er morgunsnarl og hádegisverður báða dagana á meðan námskeiðið stendur yfir. Um 30 manns eru skráðir á námskeiðið og verður án efa af nógu að taka hjá þessum frábæra styrktar- og þolþjálfara sem Lee Taft er.