11 maí 2011Styrktarþjálfun.is og KKÍ kynna frábært tveggja daga námskeið með Lee Taft á Íslandi 21.-22. maí 2011 í Grindavík. Meðal efnis: 1. Upphitun fyrir æfingar 2. Hvernig þú kemur þér í rétta varnarstöðu 3. Hvernig þú bætir sóknar og varnar eiginleika með því að þjálfa hröðun og bremsun 4. Kerfisbundin hoppþjálfun 5. Styrktaræfingar framkvæmdar á körfuboltavellinum 6. Hvernig á að nota það sem þú lærir á æfingum þegar þú hefur takmarkaðan tíma 7. Hvernig þú notar körfuboltaæfingar til þess að bæta hraða og viðbragð Tveir valkostir: 1) Almennt verð er 29.900 kr. 2) Verð á námskeiðið + bónuspakki er 44.900 kr. Verðmæti bónuspakkans er 66.000 kr. en þeir sem skrá sig á námskeiðið geta fengið hann á 14.000 (Athugið að ekki er hægt að kaupa úr pakkanum). Allt er þetta á stafrænu formi þannig að ekki bætist við neinn sendingarkostnaður né skattar. Bónuspakkinn inniheldur: (Venjulegt verð í sviga) · Basketball Speed 1 Manual and 2 Set DVD (15.000) · Basketball Speed 2 (5.000) · 6 Set Teleseminar (20.000) #1 – The Lateral Gait Cycle – The Unknown Source of Speed #2 – How to Become a Top Level Skills Coach by Using My Proven Methods #3 – How to Infuse your Sports Practice with Athletic Speed that Dominates #4 – A Multi-Purpose Strength Training Program that Fits Any Program Model #5 – Crushing the Myths about Athletic and Multidirectional Speed and Find out the Solutions #6 – Brainstorming Q & A, Plyo EBook (2.500), Hip Turn EBook (2.500) · Plyometric EBook (2.500), Collection of Lee’s Calk Talk Articles (15.000) · Lee’s Audio Interview with NBA Hall of Famer, Rick Barry (3.500). Innifalið í námskeiðsgjaldinu er morgunsnarl og hádegisverður báða dagana á meðan námskeiðið stendur yfir. Námskeiðið fer fram í íþróttahúsinu í Grindavík þann 21. og 22. maí. Námskeiðið byrjar kl. 09:00 og stendur yfir til kl. 16.00 báða dagana. Skráningarfrestur er til 10. maí. Tekið er við skráningum á [p+]kki@kki.is[p-]kki@kki.is[slod-]. Við skráningu þarf að koma fram: · Nafn · Kennitala · Heimilisfang · Félag · Netfang Greiðsluskilmálar: Þátttakandi sem skráir sig á námskeiðið samþykkir með skráningunni að greiða uppsett námskeiðsgjald. Þátttakandi þarf að greiða skráningargjald, kr. 5.000. Hætti þátttakandi við að taka þátt í námskeiðinu skal hann tilkynna það með tölvupósti á kki@kki.is minnst viku fyrir upphaf námskeiðisins. Berist tilkynningin viku áður en námskeiðið hefst fær þátttakandi skráningargjaldið endurgreitt. Ef þátttakandi skráir sig ekki úr námskeiðinu, eða hættir þegar innan við 7 dagar eru í að námskeiðið hefjist, áskilur Styrktarþjálfun og KKÍ sér rétt til þess að innheimta allt að 100% af námskeiðsgjaldi. Staðfestingargjaldið þarf að greiða við skráningu á reikning: 1193-26-190 / kt. 5811033360 sem er á nafni Helgasport ehf og setja skýringu "v/Lee Taft" sem skýringu og nafn viðkomandi sé greiðandi ekki sá sami og sá sem er skráður er á námskeiðið.