8 maí 2011Guðbjörg Norðfjörð og Eyjólfur Guðlaugsson hlutu Silfurmerki ÍSÍ á Körfuknattleiksþinginu sem fram fór um helgina á Sauðárkróki fyrir störf sín í þágu körfuboltans í gegnum árin. Hafsteinn Pálsson, stjórnarmaður ÍSÍ, mætti á þingið og afhenti þeim Silfurmerkin. KKÍ óskar Guðbjörgu og Eyjólfi til hamingju, en bæði hlutu þau kosningu í stjórn KKÍ.