7 maí 2011Í dag var ný stjórn KKÍ kosin á körfuknattleiksþinginu sem fram fer í Skagafirði. Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ, var endurkjörin en ekkert mótframboð kom gegn honum. Kosið var um sex stjórnarmenn en 10 aðilar voru í framboði. Þau sem voru kosin í stjórn KKÍ eru Guðbjörg Norðfjörð, Erlingur Hannesson, Rúnar Birgir Gíslason, Páll Kolbeinsson, Eyjólfur Þór Guðlaugsson og Lárus Ingi Friðfinnsson. Í varastjórn voru Guðjón Guðmundsson, Guðjón Þorsteinsson og Bryndís Gunnlaugsdóttir kosin en fimm voru í framboði til varastjórnar.