29 apr. 2011Hér fyrir neðan er hægt að nálgast þingtillögur félaganna og stjórnar KKÍ sem fjallað verður um á Körfuknattleiksþinginu á Sauðárkróki dagana 6.-7. maí næstkomandi. Þingtillögur fyrir Körfuknattleiksþingið 2011 er hægt að nálgast[v+]http://www.kki.is/skjol/tillogur_thing2011.pdf [v-]hérna[slod-]. Dagskrá þingsins: Föstudagur 6. maí kl. 17:00 1. Þingsetning. 2. Kosning starfsmanna: a) Kosning kjörbréfanefndar. b) Kosning fyrsta og annars þingforseta. c) Kosning fyrsta og annars þingritara. 3. Kosning fastra nefnda: a) Fjárhagsnefndb) Laga- og leikreglnanefnd.c) Allsherjarnefnd. Nefndir þessar eru skipaðar þremur mönnum hver og kjósa þær sér formann. 4. Fráfarandi stjórn gefur skýrslu. 5. Gjaldkeri leggur fram endurskoðaða reikninga sambandsins til samþykktar. 6. Stjórnin leggur fram fjárhagsáætlanir fyrir næsta ár. 7. Lagðar fram laga- og leikreglnabreytingar þær, sem borist hafa til stjórnarinnar. 8. Teknar til umræðu aðrar tillögur og önnur mál, sem borist hafa til stjórnarinnar. Kynning á frambjóðendum til stjórnar KKÍ verður fyrir þinghlé 19:45 Þinghlé og þingnefndir taka til starfa Laugardagur 7. maí kl. 10:00 9. Nefndarálit og tillögur og atkvæðagreiðslur um þær. 10. Önnur mál. 11. Kosning formanns. 12. Kosning sex meðstjórnenda og þriggja manna varastjórn. 13. Kosning sex manna í aga og úrskurðarnefnd KKÍ. 14. Kosning þriggja manna í Áfrýjunardómstól KKÍ og þriggja til vara. 15. Kosning tveggja endurskoðenda. 16. Kosning fulltrúa á Íþróttaþing. 17. Þingforseta og þingritara falið að ganga frá þinggerð. 18. Þingslit Áætluð þingslit eru um kl. 15:00 Upplýsingar fyrir þá sem munu taka þátt í þinginu er að finna [v+]http://www.kki.is/skjol/kki_thing2011_upplysingar.pdf [v-]hérna[slod-].