28 apr. 2011Frestur er runninn út til framboðs formanns, stjórnar og varastjórnar KKÍ næstu tvö árin. Ljóst er að Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ, verður endurkjörinn, þar sem engin mótframboð bárust. Til stjórnar bárust 10 framboð í sex sæti stjórnar og því ljóst að kosið verður í stjórn KKÍ á Körfuknattleiksþinginu í Skagafirði helgina 6.-7. maí. Eftirtaldir aðilar buðu sig fram í stjórn: Formaður: Hannes S. Jónsson Í stjórn: Birgir Már Bragason Bryndís Gunnlaugsdóttir Eyjólfur Þór Guðlaugsson Erlingur Hannesson Guðbjörg Norðfjörð Guðjón Þorsteinsson Jóhann Waage (í varastjórn til vara) Lárus Ingi Friðfinnsson Páll Kolbeinsson Rúnar Birgir Gíslason Þeir sem ná ekki kjöri í stjórn geta boðið sig fram í varastjórn en eitt framboð er í varastjórn fyrir. Í varastjórn: Guðjón Guðmundsson