27 apr. 2011Nú styttist í afmælis og lokahóf KKÍ og félög og hópar eru farnir að panta miða og tryggja sér sæti á Broadway á laugardaginn kemur. Hægt er að panta miða á netfanginu [p+]idunn@broadway.is[p-] idunn@broadway.is[slod-] og ganga frá greiðslu í síma 562-1100. Miðasala á Broadway Miðvikudaginn 27. apríl til föstudags 29. apríl verður opið í miðasölunni frá 13:00 – 17:00 á Broadway. Laugardaginn 30. apríl verður opið í miðasölunni frá kl. 15:00. Mikilvægt er að allir taki fram hvaða félagi eða hóp gestir tilheyra svo hægt sé að halda utan um það. Því fyrr sem félög / hópar panta því auðveldar verður fyrir Broadway og KKÍ að skipuleggja hátíðina og tryggja að allir séu saman sem koma frá sama félagi.