27 apr. 2011
Friðrik Ragnarsson og KKÍ hafa boðað unga og efnilega hávaxna leikmenn í æfingabúðir og á föstudaginn er komið að fyrri degi þeirra. Þær fara fram á heimavelli Fjölnis, í Dalhúsum í Grafarvogi. Óskað var eftir tilnefningum frá félögum og íþróttakennurum um allt land og leikmenn boðaðir í búðirnar. Yfirumsjón verður í höndum Friðriks Ragnarssonar en honum til aðstoðar verða Pétur Guðmundsson, fyrrverandi NBA leikmaður, Stefán Arnarson, Signý Hermannsdóttir, Friðrik Stefánsson, Jóhannes Kristbjörnsson, Egill Jónasson, Ragnar Nathanaelsson ásamt fleiri góðum gestum. Æft verður tvisvar á föstudeginum og einu sinni á laugardeginum. Því til viðbótar verður boðið upp á fyrirlestra frá næringarfræðingi og styrktarþjálfara. Dagskráin verður á þessa leið: Föstudagur 29. apríl: 13.00 - 15.00 · Æfing 15.30 - 16.30 · Fyrirlestur 17.00 - 19.00 · Æfing Laugardagur 30. apríl: 11.00 – 13.00 · Æfing 13.30 – 14.30 · Fyrirlestur