17 apr. 2011
Stjarnan er Íslandsmeistari í 10. flokki karla eftir 55:65 sigur á KR í úrslitaviðureign liðanna í Laugardalshöll. Dagur Kár Jónsson gerði 25 stig, tók 8 fráköst og gaf 8 stoðsendingar í liði Stjörnunnar og var valinn maður leiksins. Tómas Þórður Hilmarsson bætti við 22 stigum og 20 fráköstum ásamt 3 vörðum skotum fyrir Stjörnuna. Hjá KR var Þorsteinn Eyfjörð Þórarinsson með 18 stig og 6 fráköst og Hugi Hólm Guðbjörnsson gerði 16 stig. Til hamingju Stjarnan.