17 apr. 2011
Njarðvík var í dag Íslandsmeistari í Drengjaflokki 2011 eftir sigur á liði KR í úrslitaleiknum sem fram fór í Laugardalshöllnni. Ólafur Helgi Jónsson var valin maður leiksins eftir að hafa skorað 40 stig, tekið 20 fráköst og gefið 4 stoðsendingar í liði Njarðvíkinga. Maciej Baginski bætti svo við 15 stigum Styrmir Gauti Fjeldsted gerði 14. Hjá KR var Martin Hermannsson með 31 stig, 7 fráköst og 7 stoðsendingar og Matthías Orri Sigurðarson gerði 29 stig og gaf 6 stoðsendingar. Til hamingju Njarðvík.