17 apr. 2011Stúknaflokkur Keflavíkur varð í dag Íslandsmeistari 2011 eftir úrslitaleik gegn Njarðvík en lokatölur urðu 64:43. Sandra Lind Þrastardóttir var stigahæst í liði Keflavíkur í dag með 13 stig og 8 fráköst en besti maður leiksins, Eva Rós Guðmundsdóttir gerði 8 stig, tók 19 fráköst og gaf 6 stoðsendingar. Hjá Njarðvík var Ína María Einarsdóttir með 16 stig og 4 fráköst og Andrea Björt Ólafsdóttir gerði 7 stig og tók 12 fráköst. Með sigrinum í dag varð það ljóst að Keflavík er handhafi allra íslandsmeistaratitla í öllum kvennaflokkunum og er það sögulegur árangur. Til hamingju Keflavík með árangurinn og sigurinn í dag.