17 apr. 2011
Fyrsta úrslitaleik dagsins er lokið og þar voru það Keflavík og Njarðvík sem áttust við í úrslitaleiknum í 9. flokki kvenna. Keflavík hafði betur 65:39 og eru íslandsmeistarar 2011. Þjálfari liðsins er Jón Guðmundsson. Sara Rún Hinriksdóttir var stigahæsti í Keflavíkurliðinu með 20 stig og 14 fráköst og besti maður leiksins, Sandra Lind Þrastardóttir, gerði 16 stig, tók 20 fráköst og gaf 3 stoðsendingar. Hjá Njarðvík var Guðlaug Björt Júlíusdóttir með 27 stig og 4 fráköst. Til hamingju Keflavík.