11 apr. 201117. apríl næstkomandi ætlar íþróttafélagið „Stál úlfur“ að halda fyrsta götuboltamót innflytjenda á Íslandi. Mótið fer fram í Kórnum í Kópavogi, hefst kl. 12 og stendur fram til kl. 18. Þátttökugjaldið 4.000 ISK. á lið. Mótið er fyrir 15 ára og eldri. Allir af erlendu bergi brotnir, sem eru ekki atvinnmenn eða úrvalsdeildarleikmenn mega taka þátt. Spilað verður 3-á-3 upp í 15 stig eða 10 min. í hverjum leik og eru tvö og eitt stig fyrir körfu.Varnarlið fær boltann eftir skoraða körfu. Verði staðan jöfn, tekur hvort lið 3 vítaskot. Hvert liði á að skipa 3 – 4 leikmönnum en þrír leika inná í einu og einn varamaður sem má skipta inná hvenær sem er. Skráningu þarf að senda á netfangið stalulfur@gmail.com. Þar þarf að koma fram heiti liðs og nafn og símanúmer tengiliða. Við hvetjum alla innflytjenda til að taka þátt í þessu móti sem leikmenn eða áhorfendur. Keppt verður í riðlum og margt annað verður í gangi. Áhorfendur geta tekið þátt í 3 stiga- og vítakeppni. Veitt verða verðlaun fyrir besta lið , leikmann, 3 stiga keppni (hvort lið skrá 1 mann til keppninar og efstu tveir spila í úrslitum). Fulltrúi KKÍ kynnir starfsemi sambandsins og Sumardeildina (götuboltamót á vegum KKÍ) og fleiri gestir eru væntalegir á mótið. Markmið þessa móts er að virkja íþróttahreyfingu innflytjenda á Íslandi og finna besta lið í götubolta 2011. Einnig að hvetja nýbúa, sem hafa áhuga á körfubolta til að koma saman og í framtíðinni jafnvel að taka þátt í öðrum körfuboltamótum hér á landi. Ef spurningar koma upp á endilega hafið samband með Algirdas Slapikas í síma +354-6636268. Leikreglur: 1. Keppt er á eina körfu, 3 á 3. 2. Dómari dæmir alla leiki. 3. Skipt eftir skoraða körfu og spila út fyrir línu eftir “turnover”. 4. 2 stig fyrir utan línu. 5. Keppt upp í 15 stig eða 10 min. Vinna verður með 2 stigum. Eftir 10 min. Sigurvegarinn er lið sem skoraði fleiri stig. Ef staðan er jöfn taka leikmenn beggja liða 3 víti (1 á mann). Ef jafntefli verður eftir vítin, tekur 1 og 1 maður vítaskot úr hverju liði þangað til að einhver hittir ekki. 6. Ef villa er framin meðan hinn leikmaðurinn er i skoti er gefin 1 eða 2 vítaskot. Ef lið hefur fengið 5 villur á sig, mun hver einasta villa eftir það gefa hinu liðinu eitt vítaskot. 7. Annars gilda almennar reglur FIBA um skref, drippl og villur. 8. Umsjónarmaður fylgist með skori á hverjum velli og sker úr um vafaatriði. Nánari upplýsingar og reglur á ensku má finna á vef [v+]http://www.umsk.is/?p=1463 [v-]UMSK.is[slod-].