10 apr. 2011
Mynd: Tomasz Kolodziejski · karfan.is Síðasta úrslitaleik dagsins þessa fyrri úrslitahelgi yngri flokka er lokið, en það var úrslitaleikur í unglingaflokki karla þar sem áttust við Njarðvík og Haukar. Lokatölur urðu 76:63 fyrir Njarðvík. Þjálfari liðsins er Einar Árni Jóhannsson. Maður leiksins var valinn Ólafur Helgi Jónsson en hann var með 20 stig, 12 fráköst og 3 stolna bolta. Til hamingju Njarðvík. Næstu helgi verður seinni helgin í úrslitum yngri flokka og verða undanúrslit og úrslit í 9. flokki stúlkna, 10. flokki drengja, stúlknaflokki og drengjaflokki.