10 apr. 2011
Mynd: Tomasz Kolodziejski · karfan.is Keflavík og Snæfell léku til úrslita rétt í þessu og eftir frábærlega skemmtilegan og spennandi leik voru það keflavíkurstúlkur sem skoruðu sigurkörfuna þegar 1 sekúnda var eftir af leiknum og sigruðu 72:70. Eva Rós Guðmundsdóttir var valin maður leiksins með 17 stig, 11 fráköst og 8 stoðsendingar. Til hamingju Keflavík.