10 apr. 2011
Mynd: Tomasz Kolodziejski · karfan.is Haukar urðu í dag Íslandsmeistarar í 9. flokki drengja eftir sigur á Stjörnunni. Kári Jónsson, Haukum, var útnefndur maður leiksins en hann skoraði 13 stig, tók 5 fráköst og gaf 3 stoðsendingar og síðast en ekki síst skoraði flautukörfuna sem tryggði sigurinn. Þjálfari liðsins er Ívar Ásgrímsson. Til hamingju Haukar!