8 apr. 2011Í kvöld hefjast úrslit yngriflokka 2011 en þá fara fram undanúrslit Unglingaflokks karla. Leikið er í Laugardalshöll alla helgina og verður seinni helgin á sama stað eftir rúma viku. Fjölnir sér um mótshald og umgjörð að þessu sinni og verður Fjölnir með netútsendingarbúnað sinn á staðnum að vanda og sendir beint út alla leiki sem fram fara um helgina. Umgjörð verður með sem glæsilegsta móti og hverjum við alla til að fjölmenna í Höllina og sjá skemmtilega leiki. Leikir kvöldsins: Leikir kvöldsins: Undanúrslit: kl. 18.00 · Unglingaflokkur karla Snæfell/Skallagrímur · Haukar kl. 20.00 · Unglingaflokkur karla · Njarðvík · Hamar/Þór Þorlákshöfn Leikir laugardagsins: Undanúrslit: kl. 09.00 · Unglingafl. kvenna · Haukar · Keflavík kl. 10.30 · 9. fl. drengja · Haukar · Grindavík kl. 12.00 · 10. fl. stúlkna · Njarðvík · Grindavík kl. 13.30 · 10. fl. stúlkna · Keflavík · Breiðablik kl. 15.00 · 11. fl. karla · KR · Þór/Fsu kl. 17.00 · 11. fl. karla · Njarðvík/Grindavík · Fjölnir kl. 19.00 · Unglingafl. kvenna · Snæfell · Njarðvík kl. 21.00 · 9. flokkur drengja · Stjarnan · KR Sunnudagur: Úrslitaleikir kl. 10.00 · 10. flokkur stúlkna kl. 12.00 · 11. flokkur karla kl. 14.00 · Unglingaflokkur kvenna kl. 16.00 · 9. flokkur drengja kl. 18.00 · Unglingaflokkur karla