4 apr. 2011
Í nótt er komið að stóru stundinni í háskólaboltanum en úrslitaleikurinn fer fram í Houston og hefst kl. 01.23 að íslenskum tíma.
Að venju er leikurinn í beinni á netinu á heimasíðu [v+]http://mmod.ncaa.com/ [v-]NCAA.com[slod-].
Butler: „It’s not how you start, it’s how you finish"
Leikir Butlers í keppninni hafa unnist með að meðaltali 4.2 stigum sem sýnir hversu jafnir leikirnir þeirra og hversu seigir þeir eru þegar mest á reynir.
Butler hefur lagt lið Old Dominion, Pittsburgh, Wisconsin, Florida and Virginia Commonwealth á leið sinni í úrslitaleikinn. Þetta er í fyrsta sinn síðan 1991 sem lið fer tvö ár í röð í úrslitaleikinn í NCAA og í fysta sinn síðan 1990 sem að lið er í úrslitum sem ekki leikur yfir veturinn í einni af sterkustu deildunum
UConn: „Experience counts, but so does talent"
Connecticut unnu Bucknell, Cincinnati, San Diego State, Arizona og Kentucky á leið sinni í úrslitaleikinn. Liðið í ár hefur litla reynslu þar sem þeir náðu ekki inn í úrslitin i fyrra og þeirra helsta stjarna Kemba Walker er á næst síðasta ári í skólanum.
Skemmtilegar staðreyndir:
· Árið 2008 voru öll liðin sem voru númer 1 í lokaúrslitunum, en í ár er ekkert lið númer 1 eða 2, sem er í fyrsta sinn í 33 ára sögu keppninnar á meðan styrkleikakerfið hefur verið við líði.
· Kemba Walker, einn besti leikmaður deildarinnar, og helsta stjarna UConn hefur skorað 25.5 stig að meðaltali í síðustu 10 leikjum liðsins sem hafa allir unnist. (er með 23.9 yfir allt tímabilið). Því er spá að hann verði valinn númer 6 í nýliðavali NBA í sumer þó svo að hann eigi ár eftir í skólanum.
· UConn komst ekki í 64-liða úrslitin í fyrra.
· Til marks um virðingu háskólaboltans í Bandaríkjunum fer enginn leikur fram í NBA-deildinni í kvöld sem er sjaldgæft á þeim bænum, í deild sem er með leiki á jóladag.
· Helstu vopn Butler er að halda andstæðingum sínum undir 60 stigum en þegar þeir ná því hafa þeir unnið 30 af síðustu 31 leik.
· Ef þjálfara UConn, Jim Calhoun, tekst að sigra verður hann aðeins fimmti þjálfarinn í sögunni til að vinna þrjá titla. Hann verður þá í hóp ekki ómerkari manna en John heitnum Wooden, Adolph Rupp, Mike Krzyzewski þjálfara Duke og bandaríska landsliðsins og hinum skrautlega Bob Knight.
· Butler fór í úrslit í fyrra og tapaði. UConn hefur tvisvar farið í úrslit og unnið í bæði skiptin.