4 apr. 2011
Í kvöld er komið að fjórða leik KR og Keflavíkur í undanúrslitum Iceland Express-deildarinnar. Staðan er 2-1 fyrir KR. Það lið sem fyrr sigrar í þremur leikjum fer áfram í lokaúrslitin og mætir Stjörnunni. Leikurinn hefst kl. 19.15 og má búast við að það verði þétt setið í Toyotahöllinni þannig að það er um að gera að mæta tímanlega. Boðið verður upp á grill frá kl. 17.30 og hljómsveitin Valdimar leikur í hálfleik. Leikurinn verður sýndur í beinni á Stöð 2 Sport.