4 apr. 2011
Nú er leik kvöldsins lokið í Toyotahöllinni í Keflavík og þar þurfti að framlengja til að fá fram úrslit. Keflavík hafði á endanum sigur [v+]http://www.kki.is/widgets_game.asp?league_id=undefined&season_id=1054&game_id=279653 [v-]104:103[slod-] í stórskemmtilegum sjónvarpsleik og staðan því í einvíginu 2-2.
Það verður því oddaleikur á fimmtudaginn sem sker úr um það hvort liðið leikur til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn í ár, en leikið verður í DHL-höllinni í vesturbænum og hefst leikurinn kl. 19.15.
Fyrsti leikur í Lokaúrslitunum verður svo á mánudaginn kemur þann 11. apríl kl. 19.15, annað hvort á heimavelli KR eða Keflavíkur en það lið sem fer áfram mun leika gegn Stjörnunni til úrslita um titilinn.