31 mar. 2011Aga- og úrskurðanefnd hefur tekið til umfjöllunar kæru sem barst eftir fjölliðamót í 8. flokki kvenna, en Margrét Sturlaugsdóttir, þjálfari Njarðvíkur fékk tvær tæknivillur í leik í mótinu. Úrskurðarorð: "Úrskurður aga- og úrskurðarnefndar nr. 17/2010-2011. Hin kærða, Margrét Sturlaugsdóttir - þjálfari Njarðvíkur, skal sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Njarðvíkur - Keflavíkur í 8. flokki kvenna sem fram fór þann 13. mars 2011."