30 mar. 2011
Það verður sannkallaður suðurnesjaslagur í lokaúrslitum Iceland Express-deildar kvenna í ár en nágrannaliðin Keflavík og Njarðvík munu mætast í fyrsta sinn í sögunni í lokaúrslitum efstu deildar kvenna. Keflavík lagði KR í undanúrslitunum samanlagt 3-1. Í gær fór fram oddaleikur Hamars og Njarðvíkur í Hveragerði og þar voru það hinar grænklæddu sem höfðu sigur og tryggðu sér farseðilinn í úrslitarimmuna í fyrsta sinn í sögu félagsins. Fyrsti leikur liðanna verður á laugardaginn kemur í Toyotahöllinni kl. 16.00. Leikdagar í úrslitum kvenna: Leikur 1 - laugardagur 2. apríl kl. 16.00 - Sunnubraut Leikur 2 - þriðjudagur 5. apríl kl. 19.15 - Ljónagryfjan Leikur 3 - föstudagur 8. apríl kl. 19.15 - Sunnubraut Leikur 4 - mánudagur 11. apríl kl. 19.15 - Ljónagryfjan Leikur 5 - miðvikudagur 13. apríl kl. 19.15 - Sunnubraut