21 mar. 2011
7. flokkur Keflavíkur varð um helgina Íslandsmeistari þegar þær unnu mótið á sínum heimavelli í Toyota höllinni. Þetta er þriðja árið í röð sem þessi flokkur verður Íslandsmeistari sem er sannarlega glæsilegur árangur. Þjálfari stelpnanna er Jón Guðmundsson. Til hamingju Keflavík.