15 mar. 2011Körfuknattleikssamband Íslands auglýsir eftir umsóknum á FIBA Europe Coaching Certificate. Um er að ræða evrópskt þjálfaranám sem spannar 3 sumur og hefst nú í sumar. Umsækjandi þarf að skuldbinda sig í þrjú ár sem þátttakandi í þessu námi. Umsækjandi greiðir kostnaðinn sjálfur en getur sótt um styrk í hina ýmsu sjóði vegna námsins, s.s. fræðslusjóð KKÍ, þjálfarasjóð ÍSÍ, endurmenntunarsjóð KÍ fyrir þá sem þar eru o.fl. KKÍ á eitt öruggt pláss á námskeiðinu en möguleiki á öðru er fyrir hendi en það kemur í ljós þegar allar þjóðir hafa sent umsóknir sínar inn. Hægt er að fá nánari upplýsingar hjá Friðriki Inga Rúnarssyni, framkvæmdarstjóra KKÍ með því að senda honum tölvupóst á fridrik.runarsson@kki.is. Umsóknum skal skilað til skrifstofu KKÍ eða á netfangið kki@kki.is fyrir 23. mars næstkomandi. Umsækjendur þurfa að taka fram þjálfaramenntun, þjálfarareynslu og aðra menntun sem gæti nýst umsækjanda. Upplýsingar um námskeiðið má finna hér að neðan: [v+]http://www.fibaeurope.com/cid_cX2g4KInJe2MEsKv0ErKz1.html[v-]Almennar upplýsingar[slod-] [v+]http://www.fibaeurope.com/cid_b04tD02nJDgrSMRmATIi61.html[v-]Hvað er farið í á hverju stigi[slod-] [v+]http://www.fibaeurope.com/cid_MS2iCsalI0g7EbhOS3w4s1.html[v-]Dagatal námskeiða[slod-] [v+]http://www.fibaeurope.com/cid_VCikhxI7HhkrwZCguBKT33.html[v-]Kennarar á námskeiðunum[slod-]