14 mar. 2011Í dag verður blaðamannafundur vegna úrslitakeppni Iceland Express-deildar karla sem hefst á fimmtudaginn og föstudaginn. Jafnframt verða veitt verðlaun umferðarverðlaun til þeirra sem hafa skarað framúr í seinni hluta deildarinnar og úrvalsliðin kynnt. Fundurinn verður í húsakynnum ÍSÍ ( E-sal 3. hæð ) og hefst klukkan 13:30. Á fimmtudaginn kemur verður svo blaðamannafundur og verðlaunaafhending fyrir Iceland Express-deild kvenna.