14 mar. 2011
Fyrr í dag var blaðamannafundur þar sem úrslitakeppnin var kynnt sem framundan er og verðlaun veitt fyrir frammúrskarandi árangur í seinni umferð Iceland Express-deildarinnar. Þeir sem hlutu verðlaun voru: Úrvalslið Iceland Express-deildar karla í umferðum 12-22 Pavel Ermolinskij · KR Marcus Walker · KR Pálmi Freyr Sigurgeirsson · Snæfell Jón Ólafur Jónsson · Snæfell Sigurður Gunnar Þorsteinsson · Keflavík Dugnaðarforkurinn Helgi Rafn Viggósson · Tindastól Besti þjálfarinn Hrafn Kristjánsson · KR Besti leikmaðurinn Jón Ólafur Jónsson · Snæfell Besti dómarinn í Iceland Express-deildum Sigmundur Már Herbertsson