14 mar. 2011
Í kvöld á Stöð 2 Sport mun vera sérstakur þáttur um úrslitakeppni karla sem framundan er og verða þar sýnd mynbrot frá vetrinum og viðtöl við þjálfara allra liðanna í úrslitunum. Þjálfararnir mættu fyrr í dag upp á Stöð 2 og sátu fyrir svörum um átökin sem framundan eru. Þeir félagar Benedikt Guðmundsson og Svali Björgvinsson verða gestir þáttarins og munu kryfja málin að sinni alkunnu snilld. Þátturinn hefst kl. 20.00 í kvöld.