13 mar. 2011
Í dag fara fram síðustu tveir leikir í 1. deild kvenna en deildarkeppninni þar er að ljúka. Á Ísafirði eigast við KFÍ og Laugdælir, en þessi lið munu leika tvo leiki þessa helgi, þau áttust við í gær og taka seinni leikinn sín á milli í dag. Stjarnan tekur á móti Haukum-b í Ásgarði kl. 17.00. Stjarnan er orðin deildarmeistari hvernig sem fer og mun taka við deildarmeistaratitlinum að leik loknum. Það verða síðan Stjarnan og Valur sem munu eigast við í úrslitakeppni 1. deildar kvenna í ár í keppni um laust sæti í Iceland Express-deild kvenna að ári. Það lið sem fyrr sigrar tvo leiki færist upp um deild.