11 mar. 2011Í vikunni kom inn kæra frá 1. deildar liði Stjörnunnar gegn Grindavík b, en Grindavík telfdi fram ólöglegum leikmanni í leik liðanna þann 5. mars sl. Úrskurðarorð: Mál 3/2010-2011: "Úrslit leiks Grindavíkur b og Stjörnunnar í 1. deild Íslandsmóts kvenna, sem fram fór í Grindavík laugardaginn 5. mars s.l. eru felld úr gildi. Stjörnunni er dæmdur sigur í leiknum 20-0."