10 mar. 2011
Úrslitakeppnin 2011 klár Nú er lokið síðustu umferð Iceland Express-deildar karla og þar með ljóst hvaða lið mætast í 8-liða úrslitunum. Haukar og Fjölnir kepptu um að ná síðasta sætinu í úrslitakeppninni en bæði lið unnu sína leiki og þar með fóru Haukar í úrslit þar sem Fjölnir þurfti að treysta á að þeir töpuðu sínum leik. KR hafði betur gegn deildarmeisturum Snæfells og tryggðu sér þar með 2. sætið. Keflavík og Grindavík börðust einnig um sama sæti og þar hafði Keflavík betur í suðurnesjaslagnum. Þar sem KR var með betri stöðu innbyrðis úr leikjum þeirra í vetur eru þeir í 3. sæti. Viðureignir í 8-liða úrslitunum Sæti í deild í sviga Snæfell (1) · Haukar (8) KR (2) · Njarðvík (7) Keflavík (3) · ÍR (6) Grindavik (4) · Stjarnan (5) 8-liða úrslitin hefjast á fimmtudag og föstudag og verður það gefið út á morgun hvaða lið leika á hvaða degi. [v+]http://www.kki.is/widgets_competition.asp?league_id=190 [v-]Lokastöðuna í deildinni má sjá hérna[slod-]