8 mar. 2011Formannafundur KKÍ verður haldin næstkomandi laugardag 12. mars og hefur dagskrá hans verið send öllum formönnum félaga. Fundurinn hefst kl. 10.00 í E-sal Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal. Um hefbundinn formannafund að vori er að ræða þar sem málefni körfuknattleikshreyfingarinnar verða rædd. Körfuknattleiksþing fer svo fram í vor dagana 6. til 7. maí í Skagafirði.