7 mar. 2011Í dag er ljóst hvaða fjögur lið munu berjast um eitt laust sæti að ári í Iceland Express-deild karla og fylgja Þór Þorlákshöfn upp í efstu deild. Þór Akureyri hafnaði í öðru sæti og fær því Breiðablik sem var í því fimmta. Skallagrímur varð í þriðja og fær því Valsmenn sem voru í fjórða sæti. Vinna þarf tvo leiki til að fara í úrslitaviðureignina og það lið sem vinnur fyrr tvo leiki þar fer upp um deild. Leikdagar úrslitakeppni 1. deildar karla: Þór Akureyri-Breiðablik Leikur 1: Föstudagur 11. mars · Höllin Akureyri kl. 19.15 Leikur 2: Sunnudagur 13. mars · Smárinn kl. 19.15 Leikur 3: Þriðjudagur 15 mars · Höllin Akureyri kl. 19.15 (ef þarf) Skallagrímur-Valur Leikur 1: Föstudagur 11. mars · Borgarnes kl. 19.15 Leikur 2: Sunnudagur 13. mars · Vodafone-höllin kl. 19.15 Leikur 3: Þriðjudagur 15 mars · Borgarnes kl. 19.15 (ef þarf)