6 mar. 2011
Mynd: Þorsteinn Eyþórsson Snæfell varð í kvöld deildarmeistari Iceland Express-deildar karla eftir sigur á Hamar í Stykkishólmi. Á sama tíma lagði ÍR nágranna sína í KR og því ljóst að úrslit í síðustu umferð deildarinnar hafa engin áhrif á stöðu Snæfells. Á sama tíma varð það ljóst að Hamar tekur það hlutskipti að fylgja KFÍ niður um deild að ári. Lokaumferðin í Iceland Express-deildinni fer fram á fimmtudaginn kl. 19.15 og þá ræðst endanlega hvaða lið mætast í 8-liða úrslitunum. Til hamingju Snæfell.