5 mar. 2011
Mynd: Hjalti Vignisson Þór Þorlákshöfn fékk í kvöld afhentan deildarmeistaratitilinn í 1. deild karla 2011 en lokaumerðin í deildinni fór fram í kvöld. Þórsarar leika því í Iceland Express-deildinni að ári en þeir unnu 17 leiki í vetur og töpuðu einum. Það kemur svo í ljós hvort það verður Breiðablik, Skallagrímur, Valur eða Þór Akureyri sem mun fylgja þeim upp um deild en úrslitakeppni 1. deildar er framundan og er áætlað að hún hefjist í kringum 11. mars. Til hamingju Þór.